Skilmálar & skilyrði

Upplýsingar um Undrabörn


Bambino Ehf. Kt: 500718-0130, VSK- númer 134911, Axarhöfði 14, 110 Reykjavík. Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi og sölu á barnavörum. Bambino áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.


Afhending vöru


Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af TVG Xpress gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar TVG Xpress um afhendingu vörunnar.  Ef annar flutningsaðili er notaður að óskum kaupanda gilda sömu skilmálar. Bambino ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Bambino til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.


Verð á vöru og sendingakostnaður


Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með TVG Xpress. Sendingakostnaður er 990 - 10000 kr sem mv. stærð vöru og staðsetningu.


Að skipta og skila vöru

Af öryggisástæðum er ekki hægt að skila bílstólum . Við bjóðum upp á að máta stólinn í bílinn ef þess er óskað í verslun okkar til að ganga úr skugga um að hann passi.


Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Vöru sem skilað er endurgreiðist með inneignarnótu. 


Gölluð vara


Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000
og laga um neytendakaup.


Greiðslumátar


Hægt er að greiða með Visa-og Mastercard eða Netgíró. Við bjóðum einnig uppá greiðsludreifingu með Kortaláni Valitor þegar mætt er í verslun


  


Trúnaður (Öryggisskilmálar)


Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.


Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur