S9 Pro Double Handfrjáls brjóstapumpa - Momcozy S9 Pro Wearable Breast Pump Grey Double Packs

22.990 kr

Momcozy S9 Pro handfrjáls brjóstapumpa

Hönnuð til að auðvelda mæðrum að dæla mjólk hvar og hvenær sem er, án flókins búnaðar eða snúra. brjóstapumpan er létt og passar í brjóstarhaldarann sem veitir fullkomið frelsi til að sinna daglegum verkefnum á meðan dælt er. 

Helstu eiginleikar

  • 2 stillingar og 9 stillanleg sogstig
  • sogkraftur: 280–300 mmHg
  • Hljóðstig undir 50 dB
  • LED-skjár – auðlesinn dag og nótt
  • slökknar sjálfkrafa eftir 30 mínútur
  • 180 ml mjólkurhólf
  • Þráðlaus, USB-C hleðsla, 2,5 klst hleðslutími
  • Létt og nett hönnun
  • Matvælavottað, BPA-frítt sílikon

2 stillingar og 9 sogstig

S9 Pro handfrjálsa brjóstapumpan er með tvær stillingar fyrir dælingu og blandað sog með 9 stillanleg sogstig, sem örvar náttúrulegan sogtakt barnsins og eykur mjólkurframleiðslu, sem gerir mæðrum kleift að fá meiri mjólk á styttri tíma. LED skjárinn er mjög auðlesinn, jafnvel í fljótu bragði, sem gerir dælingu auðveldari á nóttunni ásamt 50db hljóði sem vekur ekki barn.

Öflug rafhlaða fyrir daglega notkun

  • Endist í allt að 6–8 dælingar (allt að 180 mínútur) á einni hleðslu
  • Hleðslutími um 2,5 klst. með USB-C tengi (mælt er með 5V–1A hleðslutæki)
  • Sjálfvirk slökkt eftir 30 mínútur til að spara rafhlöðu og auka öryggi

Nákvæm aðlögun og þægindi

S9 Pro kemur með 24 mm trektastærð sem hentar flestum, en það er mikilvægt að mæla geirvörtustærð áður en byrjað er að dæla til að tryggja fullkomna aðlögun (4 stærðir (17/19/21/24mm). Brjóstastærð getur breyst fyrir og eftir dælingu, svo fylgdu leiðbeiningum við val á réttri stærð hér

Auðveld í notkun og þrifum

Pumpan er framleidd úr matvælavottuðu, BPA-fríu sílikoni sem uppfyllir FDA-kröfur. Hægt er að setja pumpuna upp á örfáum sekúndum og hefja dælingu með einum takka. Það er auðvelt að taka pumpuna í sundur fyrir þrif, sem sparar tíma.

Hér er hægt að bera saman pumpurnar og sjá hver munurinn er á þeim - https://momcozy.com/pages/compares-pump


Fyrri