34,990 kr
Momcozy M5 er hönnuð til að endurskapa náttúrulega næringu barnsins. Hún notar sérstakt lárétt dælingarhorn sem líkir eftir stöðu munns barns við brjóstagjöf, í stað þess að toga upp eða niður eins og hefðbundnar dælur. Þetta horn veitir mýkri sogkraft, örvar betra mjólkurflæði og eykur þægindi í hverri dælingu — fyrir náttúrulegri og notalegri upplifun.
M5 býður upp á þrjár stillingar – örvun, dælingu og uppfærðan blandaðan ham sem örvar mjólkurganga og flýtir fyrir niðurstreymi. Þessi tækni styður við tæmingu brjóstanna og eykur framleiðslu á náttúrulegan og mildan hátt. Allar stillingar hafa 9 sogstig svo hægt er að finna nákvæma taktinn sem hentar hverri móður.
Momcozy M5 er minni og léttari en hefðbundnar dælur — aðeins 2/3 af stærð venjulegra handfrjálsra pumpa. Hún er mjög nett, hljóðlát og auðveld, sem gerir auðvelt að dæla á ferðinni eða í vinnunni án þess að vekja athygli.
Engar snúrur eða takmarkanir — dælið hvar og hvenær sem er.
M5 kemur með 24 mm trektastærð sem hentar flestum en einnig fylgja (17 / 19 / 21 mm) trektastærðir til að tryggja fullkomna aðlögun.
Brjóstastærð getur breyst fyrir og eftir dælingu, svo mikilvægt er að mæla geirvörtustærð rétt áður en dæling hefst til að tryggja besta árangur og forðast leka.
Momcozy hefur hannað harðskelja geymslutösku sem ver pumpuna gegn hnjaski og heldur henni hreinni og snyrtilegri.
Hönnunin endurspeglar bæði þægindi og fagurfræði — þannig að hver smáatriði styður við þig í daglegu lífi.
Hér er hægt að bera saman pumpurnar og sjá hver munurinn er á þeim - https://momcozy.com/pages/compares-pump
Til að tryggja góðan sogkraft, rétta virkni og hreinlæti er mikilvægt að skipta reglulega um slit- og varahluti brjóstapumpunnar. Tíðni fer eftir því hversu mikið pumpan er notuð.
Duckbill valves & membranes
Mælt er með að skipta um á 2–4 vikna fresti við mikla eða daglega notkun. Við minni eða óreglulega notkun er mælt með skiptum á 2–3 mánaða fresti.
Silicone diaphragms / seal caps
Mælt er með að skipta um á 1–3 mánaða fresti við mikla notkun eða á 3–4 mánaða fresti við minni eða óreglulega notkun.
Collection cups, containers & bottles
Mælt er með að skipta um á 6 mánaða fresti, eða fyrr ef rispur, aflögun eða litabreytingar koma fram.
Flanges / breast shields & tubing
Mælt er með að skipta um á 6 mánaða fresti, eða strax ef vart verður við sprungur, myglu eða raka í slöngum.
Skipta skal um viðkomandi hluta fyrr ef þú tekur eftir:
Athugið: Varahlutir brjóstapumpa eru slitvörur og ending þeirra fer eftir notkun, þrifum og meðhöndlun. Regluleg endurnýjun þeirra er mikilvæg til að viðhalda sogkrafti og réttri virkni pumpunnar.